Lög og reglur Samkórs Kópavogs

 

LÖG SAMKÓRS KÓPAVOGS

2024

 

1.gr .
Kórinn heitir Samkór Kópavogs. Heimili hans og varnarþing er í Kópavogi.

2.gr.

Tilgangur og markmið kórsins er að vera kórfélögum þroskandi vettvangur í söng og tónlist
og að efla menningar- og sönglíf bæjarins.
3.gr.
Aðalfundur skal haldinn í október ár hvert. Boða skal til hans með tveggja vikna fyrirvara. Til
fundarins skal boða með dagskrá. Lagabreytingar skulu einungis fara fram á löglegum
aðalfundi og til þeirra þarf 2/3 atkvæða. En löglegur er aðalfundur sé löglega til hans boðað.
Tillögur að lagabreytingum liggi frammi eigi síðar en 4 vikum fyrir aðalfund. Lagabreytingar
þurfa að koma fram í dagskrá.

4.gr.

Stjórn kórsins skipa 5 menn. Formaður og 4 meðstjórnendur. Formaður skal kosinn sér til
eins árs og árlega 2 meðstjórnendur til tveggja ára. Stjórnin skiptir með sér verkum á fyrsta
fundi eftir aðalfund. Kjósa skal 2 skoðunarmenn reikninga. Kosning skal vera leynileg sé
þess óskað.

5.gr.

Kjósa skal á aðalfundi þriggja manna uppstillingarnefnd. Uppstillingarnefnd skal leggja fram
á aðalfundi tillögu að stjórn.

6. gr.

Í kórnum skulu starfa eftirtaldar nefndir sem skipaðar eru af stjórn eigi síðar en þremur vikum
eftir að ný stjórn tekur við. Áður en stjórn skipar í nefndir skal kórfélögum gefinn kostu á að
bjóða sig fram til nefndarstarfa. Kaffinefnd – skipur tveimur félögum. Búninga- og siðanefnd
– skipuð tveimur félögum. Markaðs- og tónleikanefnd – skipuð þremur félögum.
Fjáröflunarnefnd – skipuð þremur félögum. Skemmtinefnd – skipuð þremur félögum.
Ferðanefnd – skipuð fjórum félögum. Skipuð þegar fyrirhugaðar eru ferðir innanlands eða
utan.Hver nefnd kýs sér formann sem er tengiliður við stjórn. Setja skal nefndum markmiðs-
og verkefnalýsingar. Sjórn er heimilt að skipa í aðrar nefndir telji hún þörf á.

7.gr.

Stjórnin skal skipa einn nótnavörð og annan til vara. Hlutverk þeirra er að sjá um nótnasafn
kórsins og að ljósrita og dreifa nótum eftir þörfum.
8.gr.

Stjórn skal skipa tvo aðila til að tengja kórinn samfélagsmiðlum og skal annar vera
stjórnarmaður. Hlutverk þeirra er að sjá um heimasíðu kórsins, félsbókarsíðu kórsins og
önnur netsamskipti.

9.gr.

Raddformenn skulu skipaðir af stjórn. Hlutverk þeirra er að skrá viðveru kórfélaga í hverri
rödd og vera tengiliður félaga innan raddarinnar. Setja skal raddformönnum markmiðs- og
verkefnalýsingu.

10. gr.

Stjórnin skal tilnefna 2 úr stjórn eða 1 stjórnarmann ásamt söngstjóra til setu á fundum hjá
Landsambandi blandaðra kóra.

11.gr.

Stjórn kórsins og söngstjóri skulu sameiginlega sjá um verkefnaval.

12. gr.

Félagsfundi skal boða ef stjórnin telur ástæðu til og ef minnst 10 kórfélagar óska þess
skriflega. Rita skal fundagerðir fyrir þessa fundi.
13. gr.

Reikningsár kórsins skal vera 1.september til 31.ágúst. Endurskoðaðir reikningar skulu lagðir
fram á aðalfundi.

14. gr.

Árgjaldið skal ákveða á aðalfundi og skal helmingur þess vera greiddur fyrir 1. desember og
seinni hlutinn fyrir 1. apríl. Heimilt er að gera samkomulag um að félagar skipti greiðslum
gjaldsins í fjóra hluta. Árgjald skal að fullu greitt fyrir 1. apríl.

15. gr.

Sjóðir kórsins skulu vera varðveittir og sem best ávaxtaðir á bankareikningi og ráðstafar
gjaldkeri þeim í samráði við aðra stjórnarmenn.
16. gr.

Stjórn kórsins ræður söngstjóra og gerir við hann starfssamning. Söngstjóri skal í samráði
við stjórn útvega aðra starfsmenn svo sem undirleikara og aðra listamenn sem fram koma á
vegum kórsins.

17. gr.

Hætti kórinn störfum skulu eignir hans afhentar Lista- og mennningarráði Kópavogs til
varðveislu og ráðstöfunar ef engin sambærilegur kór yrði stofnaður innan árs í Kópavogi.

18. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi og eldri lög falla út. Samþykkt á aðalfundi 7. október 2024

Flettingar í dag: 97
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 588
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 423941
Samtals gestir: 47615
Tölur uppfærðar: 21.12.2024 12:40:00