Saga Samkórsins

 

 

 

Saga Samkórs Kópavogs 1966-2026

 

Samkór Kópavogs var stofnaður 18. október 1966 af nokkrum söngglöðum og framsæknum Kópavogsbúum. Þar á meðal var Jan Morávek, tékknesk ættaður tónlistarmaður, sem settist að á íslandi um miðja síðustu öld. Auk þess að vera einn af stofnendum kórsins var hann stjórnandi hans frá upphafi þar til hann féll skyndilega frá árið 1970.
Fyrsti formaður kórsins var Valur Fannar. Að frátöldum örfáum árum um miðbik áttunda áratugsins hefur kórinn starfað óslitið frá stofnun hans. Allmargir kórstjórar hafa komið að stjórnun kórsins á þessu langa tímaskeiði en lengst stjórnaði kórnum Stefán Guðmundsson frá 1985 til 1997. Dagrún Hjartardóttir tók við stjórnun kórsins árið 1997 og Julian Hewlett
árið 2000. Björn Thorarensen stjórnaði kórnum frá 2006 til 2011 og Skarphéðinn Þór Hjartarson frá 2011 til 2013.
Stjórnandi kórsins frá 2013 fram í ársbyrjun 2023 var Friðrik S. Kristinsson en þá tók Lenka Mátéová við stjórn hans. Kórinn hefur fengist við fjölbreytt verkefni, haldið fjölda tónleika og komið víða fram við ýmis tækifæri. Undir stjórn Björn Thorarensen hélt kórinn inn á nýjar brautir í verkefnavali en þá frumflutti kórinn þrjú ár í röð jafn mörg kórverk eftir breska núlifandi tónskáldið Karl Jenkins. Verkin voru flutt við undirleik hljómsveita skipaðar kennurum og
nemendum Tónlistarskóla Kópavogs sem og annarra tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu. Hjörleifur Valsson var konsertmeistari á öllum tónleikunum.
Árið 2008 tók kórinn þátt í Kórastefnu á Mývatni en þar var flutt verkið Carmina Burana eftir Carl Orff. Kórinn gaf út hljómdisk árið 1993 undir heitinu Heyrum söng. Kórinn hefur farið í söngferðir bæði innan- og utanlands. Má þar nefna  ferðir til Norðurlanda árið 1980, til Finnlands 1983 og til Noregs 1997. Árið 2000 hélt kórinn til  Austurríkis og Ungverjalands, til Englands 2003 og til Eystrasaltslandanna og Finnlands 2007. Árið 2012 var haldið til Pétursborgar í Rússlandi og til Finnlands. Á fimmtíu ára afmælisárinu hélt kórinn til
Vesturheims og heimsótti slóðir Vestur Íslendinga og tók þátt í hátíðarhöldum Íslendingadagsins í Manitoba og Gimli. Árið 2019 hélt kórinn til Skotlands og hélt tónleika bæði í Edinborg og í Glasgow. Á ferðalögum sínum hefur kórinn heimsótt alla vinabæi Kópavogs á Norðulöndum.
Á stórafmælum sínum hefur kórinn haldið veglega afmælistónleika. Á fjörtíu ára afmælinu hélt kórinn tónleika með þreföldu húsfylli í Salnum, tónlistahúsi Kópavogs og á 50 ára afmæli sínu árið 2016 tvenna tónleikar í Hjallakirkju fyrir fullu húsi.
Samkór Kópavogs er einn af elstu Samkórum landsins. Kórinn hefur ávallt verið vel tengdur bæjarfélagi sínu og starfsemin notið árlegs menningarstyrks. Kórinn hefur sungið við ýmis tilefni í Kópavogi sértaklega á fyrri áratugum hans þar sem kórinn var mjög áberandi í menningarlífi bæjarins.
Samkórinn hefur jafnan verið skipaður góðu söngfólki, búsettu í Kópavogi og annars staðar af höfðuborgarsvæðinu. Nú á afmælisári eru kórinn skipaður liðlega 40 söngvurum en þegar kórinn var sem fjölmennastur skipaði hann um 70 manns.
Sem áður segir er núverandi stjórnandi kórsins Lenka Mátéová. Lenka er fædd í Tékkóslóvakíu og nam þar tónlist. Hún lauk kantorsprófi frá Konsvervatórínni Kromeriz og masternámi við Tónlistarakademína í Prag. Lenka hefur búið á Íslandi frá árinu 1990 og komið víða við í tónlistarlífi landsins m.a. sem organisti og orgel- og píanóleikari með kórum. Hún
starfaði síðast sem organisti og kórstjóri í Kópavogskirkju um árabil. Þess má geta að á stjórnunarárum Friðriks var hún meðleikari og þekkir því vel starfsemi kórsins.
Núverandi formaður kórsins er Torfi Rúnar Kristjánsson

 

SAMKÓR KÓPAVOGS

 

 

 

Flettingar í dag: 74
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 1661
Gestir í gær: 26
Samtals flettingar: 1112789
Samtals gestir: 70466
Tölur uppfærðar: 21.3.2026 04:49:18